
Iðngörðum 9, 250 Garði
Opið fimmtudaga 16:30-18:00

Litla brugghúsið var stofnað í maí 2020. Brugghúsið var stofnað af þremur bílskúrsbruggurum Markús, Davíð og Kristnn, sem lögðu metnað í að brugga gæða handverksbjór og vildu leyfa fleirum að njóta. Menntun og fyrri störf bruggaranna studdi vel við þau verkefni sem framundan voru. Fengum við húsið að Iðngörðum 9 afhent 1. júní 2020. Var þá strax hafist handa við að undirbúa húsið undir framleiðslu. Fyrsta framleiðsla sem fór í sölu var Skeggi í desember 2020.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og eru bjórarnir okkar orðnir 13! Af þeim eru 4 árstíðabundnir bjórar og tveir sérframmleiddir fyrir veitingastaði.
Smelltu hér til að skoða alla bjórana nánar.
Það er skemmtilegt að sitt eigið útlit á bjór. Við bjóðum upp á að sérmerkja okkar bjóra fyrir stórafmæli, árshátíðir og ýmsa aðra viðburði. Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.